Vottun hf.

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir Vottanir OHSAS 18001 vottun VSÓ ráðgjafar ehf.

OHSAS 18001 vottun VSÓ ráðgjafar ehf.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

VSÓ ráðgjöf ehf. fékk nýlega þriðju vottunina á stjórnunarkerfi sitt hjá Vottun hf. Um er að ræða vottun á samræmi kerfisins við kröfur staðalsins OHSAS 18001, sem fjallar um stjórnun heilsu og öryggis á vinnustað. Fyrirtækið hefur rekið vottað gæðastjórnunarkerfi og umhverfisstjórnunarkerfi um árabil.

VSÓ ráðgjöf ehf. var stofnað 1958. Í upphafi starfaði fyrirtækið einkum á sviði byggingarverkfræði en á áttunda áratugnum var lagt út á nýjar brautir í þjónustunni til að mæta þörfum viðskiptavina. Nú veitir fyrirtækið alhliða verkfræðiráðgjöf og nær vottunin til hönnunar, eftirlits og ráðgjafar á sviði byggingar-, véla- og rafmagnsverkfræði og öryggis-, umhverfis-, samgöngu- og skipulagsmála, auk verkefnastjórnunar, áætlanagerðar og eftirlits með mannvirkjagerð. Nánari upplýsingar um VSÓ ráðgjöf ehf. er að finna á heimasíðu fyrirtækisins, www.vso.is.

 

Vottuð starfsemi

 

 

Upplýsingar um handhafa
gildra vottorða og umfang
vottana hjá Vottun hf.
fást á skrifstofu félagsins.


Vottun hf. —    NMÍ, Keldnaholti    —    112 Reykjavík    —    sími: 570-7200    —    fax: 522-9111    —    tp: vottun@vottunhf.is    —    kt: 590691-1439